Stök frétt

Rjúpnaveiðar hefjast næstkomandi föstudag, 26. október og verður eins og undanfarin ár bundin við helgar, föstudag, laugardag og sunnudag. Mikill áhugi er fyrir veiðunum eins og endranær og hefur hlutfall kvenna í hópi veiðimanna vaxið nokkuð á seinni árum.

Náttúrufræðistofnun Íslands hefur metið að stofninn þoli veiðar á 67.000 rjúpum sem er aukning frá fyrra ári. Þrátt fyrir þessa aukningu hvetur Umhverfisstofnun veiðimenn til að gæta hófs á veiðum eins og þeir hafa gert á undanförnum árum. Þá er sölubann á rjúpum og rjúpnaafurðum enn í gildi.

Rjúpnaveiðiverndarsvæði verður áfram á SV-landi líkt og undanfarin ár. (https://www.stjornarradid.is/media/umhverfisraduneyti-media/media/frettir/kortRjupa.JPG )

Að endurnýja veiðikort

Umhverfisstofnun minnir þá veiðimenn, sem eiga það eftir, á að skila inn veiðiskýrslu og sækja um endurnýjun veiðikorts, það skal gert áður en haldið er til veiða. Ef veiðimaður er ekki viss hvort hann hafi endurnýjað veiðikort sitt þarf hann ekki að hringja í Umhverfisstofnun til að fá upplýsingar heldur getur hann farið inn á skilavefinn og athugað stöðuna á veiðikorti sínu hvenær sólarhrings sem er.

Til að komast inn á skilavefinn nægir að smella á eftirfarandi slóð http://umsokn.umhverfisstofnun.is/web/index.html og nota rafrænt skilríki eða Íslykil. Ef veiðimaður er hvorki með Íslykil sé rafrænt skilríki er hægt að sækja um Íslykil á island.is. Þá berst Íslykillinn annað hvort í netbanka/heimabanka þinn (tekur 5-10 mínútur) eða lögheimili (tekur 4-6 virka daga). Íslykillinn er aðgangsorð sem Þjóðskrá Íslands gefur út. Upplýsingar um rafræn skilríki í síma má finna á skilriki.is.

Öllum veiðikorthöfum er skylt að skila inn veiðiskýrslu undangengins veiðiárs hvort sem þeir veiddu eitthvað eða ekki. Eins þarf veiðikorthafi að skila inn skýrslu hvort sem hann hyggst endurnýja veiðikort eða ekki. Til að skerpa á skilaskyldunni hækkar veiðikortagjaldið hjá þeim sem skila inn veiðiskýrslu sinni eftir 1. apríl úr 3.500 kr. í 5.000 kr. Kjósi menn að fá plastkort bætist sendikostnaður við, 195 kr. Nánari upplýsingar má finna á heimasíðu Umhverfisstofnunar, www.ust.is.

Rafrænt veiðikort

Nú fá allir sent rafrænt veiðikort á netfang sitt þegar greitt hefur verið fyrir kortið. Þeir sem greiða með debet- eða kreditkorti fá rafræna veiðikortið sent um leið og þeir hafa greitt fyrir kortið á netinu. Þeir sem kjósa að greiða inn á bankareikning mega eiga von á að afgreiðslan taki 3-5 daga. Veiðimenn geta afþakkað plastkortið og látið rafræna veiðkortið duga en hægt er að hafa það í snjallsímum og eins er hægt að prenta það út fyrir veiðiferðina. Þegar veiðimaður hefur gengið frá veiðiskýrslu og greitt fyrir kortið getur hann alltaf sótt rafræna veiðikortið í Þjónusutgáttin - Mínar Síður.

Það hefur borið á því að veiðimenn hafi ekki fundið rafræna veiðikortið í tölvupóstinum hjá sér þótt þeir séu búnir að fá kortið afgreitt. Helsta skýringin er að í gmail og á hotmail ratar tölvupóstur frá Umhverfisstofnun ekki endilega í innhólfið heldur í ruslpóstsmöppuna (e. junkmail) eða jafnvel aðrar möppur, sérstaklega ef viðhengi fylgir eins og á við um rafræna veiðikortið. Þeir sem finna ekki veiðikortið sitt ættu því að leita í þessum möppum.

Athugið einnig að það er alltaf hægt að fara inn á Þjónustugáttina-Mínar síður hér á heimasíðu Umhverfissstofnunar og fá rafræna veiðikortið sent aftur.

Greiðsla fyrir veiðikort á skilavefnum

1. Með debet- eða kreditkorti

Umhverfisstofnun mælir með greitt sé fyrir veiðikortið með debet- eða kreditkorti en þá er veiðikortið afgreitt sjálfvirkt um leið að greiðsla hefur farið fram en þá fær veiðimaður rafrænt veiðikort sent með tölvupósti.

2. Greitt inn á reikning

Þeir veiðimenn sem ekki hafa tök á að greiða með greiðslukorti geta greitt inn á reikning okkar (565-26-3298, kt. 701002-2880). Upphæð greiðslu kemur fram á skilavef þegar valið er að greiða inn á reikning. Það getur tekið allt að 3-5 daga að fá veiðkortið afgreitt sé greitt inn á reikning og er því mælt með að greiða með greiðslukorti. Ef greiðandi er annar en handhafi veiðikorts skal kvittun send í tölvupósti á netfangið veidistjorn@umhverfisstofnun.is með kennitölu veiðikortshafa í skýringu.