Stök frétt

Þótt vetur sé genginn í garð er unnið af kappi við Skógafoss við frágang á göngustíg að Skógaheiði.

Fyrirtækið Stokkar og Steinar sér um hönnun og framkvæmd á göngustígnum. Stefnt er að lokum framkvæmda á næstu dögum.

Gera má ráð fyrir einhverjum takmörkunum á umferð á Skógaheiði á meðan framkvæmdum er ólokið. Þær eru fyrsti áfangi í uppbyggingu og lagfæringu á gönguleiðinni um Skógaheiði, sem hófst fyrir um ári. Umtalsvert jarðvegsrof hafði skapast í og við göngustíg meðfram Skógá og tengist fjölgun ferðamanna. Svæðið er illa farið vegna ágangs og mjög mikilvægt að bregðast við sem fyrst til að stoppa jarðvegsrof meðfram göngustíg á Skógaheiði.

Í fyrsta áfanga framkvæmdanna er unnið að uppbyggingu göngustígar frá útsýnispalli ofan Skógafoss að Fosstorfufossi, á um 650 metra löngum kafla. Í næsta áfanga verður haldið áfram lagfæringu á göngustíg þar sem frá var horfið. Búið er að gera áætlun um lagfæringu á um 3ja km kafla meðfram Skógá.

Undanfarin tvö ár hefur svæðinu ofan við Skógafoss verið lokað á vorin til að draga úr álagi á viðkvæmasta tímanum þegar frost fer úr jörðu og gróður tekur við sér.