Stök frétt

Umhverfisstofnun hefur tekið í notkun nýja heimasíðu sem miðlar upplýsingum um loftgæði. Hlekkurinn á síðuna er loftgæði.is og já, það má nota íslenska stafi í slóðina!

Nýja síðan er mun notendavænni en sú eldri. Helsti munurinn er að strax á upphafssíðunni fæst yfirlit um loftgæði á öllum mælistöðvum á landinu. Litakóði er notaður til að sýna ástand loftgæða á hverri mælistöð þannig að almenningur á auðveldara með að átta sig á stöðunni. Styrkur mengunarefna á hverri stöð ræður litnum á viðkomandi stöð á Íslandskortinu. Notendur geta svo með einföldum hætti skoðað nánar mæligildin fyrir viðkomandi stöð.

Hér má sjá upphafssíðu nýrrar vefsíðu. Depill fyrir hverja loftgæðastöð skiptir sjálfkrafa um lit eftir styrk loftmengunar hverju sinni. Á þessari mynd sjást hækkuð gildi á Norðurhellu í Hafnarfirði. Þegar smellt er á viðkomandi stöð er hægt að skoða nánar hvaða loftmengunarefni hafa hækkuð gildi, eins og sýnt er á næstu mynd, og er línuritið fyrir hvert efni er einnig í mismundandi litum eftir styrk viðkomandi efnis á hverjum tíma.

 

Gögnum um loftgæði á Íslandi er jafnframt miðlað á evrópska loftgæðavefinn  þar sem má sjá stöðu loftgæða á Íslandi í samanburði við önnur lönd í Evrópu.

Opnum þessarar nýju síðu er fyrsta skrefið í að miðla upplýsingum úr nýju loftgæðaupplýsingakerfi (Airviro) sem starfsfólk Umhverfisstofnunar hefur unnið að uppsetningu á síðusta árið.

Á næstu mánuðum munu bætast við fleiri valmöguleikar á síðuna og ber þá helst að nefna dreifilíkan loftmengunarefna á völdum svæðum á landinu. Dreifilíkanið reiknar út styrk loftmengunar hverju sinni út frá gagnagrunni um losun loftmengunarefna og veðuraðstæðum hverju sinni. Upplýsingar um styrk loftmengunarefna í mælistöðvum segja í raun aðeins til um stöðu loftgæða á þeim punkti þar sem mælistöðin er staðsett en með dreifilíkani verður hægt að sjá hvernig loftmengun dreifist undan vindi. Því verður hægt að sjá mismunandi styrk loftmengunar á öllu því svæði sem dreifilíkanið sýnir. Þannig verður til dæmis hægt að sjá gróflega hver styrkur loftmengunarefna er á öllu höfuðborgarsvæðinu.

Starfsfólk Umhverfisstofnunar vonast til að sem flestir geti nýtt sér þessa nýju heimasíðu til að fylgjast með loftgæðum í sínu nærumhverfi.