Ársfundur Umhverfisstofnunar fer fram á Grand hóteli, föstudaginn 03. maí nk. kl. 13.00-15.00.
Yfirskrift fundarins er Morgundagurinn – nær en þig grunar! Sérstakir gestir í ár eru forstjóri Umhverfisstofnunar Írlands, Laura Burke, og Sævar Helgi Bragason, „Stjörnu-Sævar“.
Allir velkomnir meðan húsrúm leyfir.
13.00 Setning ársfundar.
13.05 Guðmundur Ingi Guðbrandsson, umhverfis- og auðlindaráðherra flytur ávarp.
13.25 Kristín Linda Árnadóttir, forstjóri Umhverfisstofnunar: „Bara seinni tíma vandamál“.
13.40 Laura Burke, forstjóri Umhverfisstofnunar Írlands: „EPA and the Circular Economy” (Umhverfisstofnun Írlands og hringrásar- hagkerfið).
14.05 Örstuttar fyrirspurnir til Lauru.
14.10 Sævar Helgi Bragason - Stjörnu-Sævar: „Hvað getum við gert til að laga plánetuna Jörð? – lærdómur af þáttagerð um umhverfismál“.
14.20 Elva Rakel Jónsdóttir, Ólafur A. Jónsson og Sigrún Ágústsdóttir, sviðstjórar hjá Umhverfisstofnun: „Hvernig getum við aukið vilja og getu til að takast á við umhverfisvandamál framtíðarinnar?“.
14.41 Pallborðsumræður.
15:00 Lok ársfundar.
Fundarstjóri: Sigríður Auður Arnardóttir, ráðuneytisstjóri.
Allir velkomnir
meðan húsrúm leyfir.
Hægt verður að fylgjast með ársfundinum í beinni útsendingu á ust.is
Umhverfisstofnun hvetur gesti til að nýta vistvænan samgöngumáta til ferða á ársfundinn.
Grand Hótel Reykjavík er svansvottað hótel