Stök frétt

Þann 8. febrúar sl. sendi Hula bs. Umhverfisstofnun erindi þar sem óskað var eftir breytingu á starfsleyfi byggðasamlagsins fyrir urðun á Skógarsandi. Var óskað eftir undanþágu frá gr. 3.4 í starfsleyfinu varðandi söfnun á hauggasi.

Sérfræðingar munu nú hefja vinnu við breytingu starfsleyfisins í samræmi við ósk umsækjanda en reglugerðartilvísanir verða einnig uppfærðar. Hið breytta starfsleyfi verður svo auglýst opinberlega í fjórar vikur og verður almenningi gefin kostur á að koma með athugasemdir.