Stök frétt

Alþjóðadagur landvarða er haldinn hátíðlegur um allan heim 31. júlí ár hvert til að styðja við ómetanleg störf landvarða við að vernda villta náttúru og dýralíf sem á undir höggi að sækja alstaðar í heiminum.

Landvarðadagurinn er fyrst og fremst til að minnast þeirra fjölmörgu landvarða sem hafa látist eða slasast við skyldustörf. Alþjóðasamtök landvarða halda utan um fjölda þeirra sem hafa látist og á undanförnum 10 árum hafa yfir eitt þúsund landverðir látist við störf sem snúa að verndun náttúru og dýralífs. Flestir þeirra eru frá Afríku og Asíu þar sem landverðir eiga m.a. í stríði við veiðiþjófa og skógarhöggsmenn. Þessi dagur er einnig haldinn hátíðlegur til að fagna störfum landvarða sem leggja sig alla fram við að vernda náttúru- og menningarleg verðmæti heimsins.

Á Íslandi starfa landverðir á náttúruverndarsvæðum og hefur þeim fjölgað á undanförnum árum samhliða fjölgun ferðamanna og svæða sem hafa verið friðlýst. Í ár starfa hjá Umhverfisstofnun rúmlega 40 landverðir frá vori fram á haust. Landverðir standa fyrst of fremst vörð um náttúru landsins en einni fræða og upplýsa fólk um hvernig eigi að njóta gæða móður náttúru án þess að raska auðlindum hennar svo næstu kynslóðir fái einnig notið þess. 

Landverðir Íslands ætla að fagna þessum degi miðvikudaginn 31. júlí víða um land og bjóða gestum náttúruverndarsvæða að kynnast störf landvarða og náttúru og sögu svæðanna. Landverðir Umhverfisstofnunar munu vera með fræðslugöngur á eftirtöldum stöðum:

  • Þjóðgarðurinn Snæfellsjökull
    Ganga á Djúpalónsandi. Lagt af stað frá bílastæðinu við Djúpalónsand kl. 11:00 og tekur gangan um 1,5 klst. Nánari upplýsingar í síma 436-6888.
  • Friðland að Fjallabaki
    Lagt af stað frá upplýsingabás í Landmannalaugum. Landverðir  munu bjóða gestum í göngu um Laugahraun í Landmannalaugum og fræða þá um störf landvarða og náttúru og sögu friðlandsins. Gangan byrjar kl. 14:00 og tekur um 2,5 klst. og er miðlung létt. Nánari upplýsingar í síma 822-4083.
  • Friðlandið Vatnsfirði, Vesturbyggð
    Fetað í fótspor Flóka Vilgerðarsonar og gengið upp á Lónfell. Lagt af stað frá Flókatóftum við höfnina á Brjánslæk kl. 13:00 og tekur gangan um 4. klst. Gangan er meðal erfið, hækkun um 300 metrar, nokkuð stórgrýtt á köflum og mikilvægt að vera í góðum skóm. Nánari upplýsingar í síma 837-7011.
  • Fjaðrárgljúfur,Skaftárhreppi
    Landverðir Umhverfisstofnunar og Vatnajökulsþjóðgarðs bjóða í göngu um brúnir Fjaðrárgljúfur. Lagt af stað frá efra bílastæði við veg F206 kl. 12:00. Gangan er létt og tekur um 1 klst. Nánari upplýsingar í síma 822-4084.
  • Verndarsvæði Mývatns og Laxá
    Gengið verður frá útsýnispalli við Kálfastrandarstrípa austur fyrir Birtingatjörn og þaðan hring um Klasa. Gangan hefst kl. 20:00 og gengið verður um 4 km sem tekur um 2 klst.

  • Þjórsárdalur
    Fræðsluganga í Gjána – Hvað vex undir birkinu. Gengið inn Gjána vestanmegin Rauðár. Gangan hefst við áningasvæðið við göngustíginn upp að Stöng kl. 13:00 og tekur um 1 klst. Létt ganga fyrir alla fjölskylduna. Nánari upplýsingar í síma 822-4034.

  • Hrauneyjar Rangárþingi Ytra
    Landverðir Umhverfisstofnunar og Vatnajökulsþjóðgarðs bjóða gestum velkomna á sýningu í Hrauneyjum þar sem hægt er að fá allar upplýsingar um náttúruverndarsvæði á miðhálendinu. Einnig ætla landverðir að bjóða heim í Ferjukot, skála landvarða í Haldi milli kl. 14:00 og 16:00 þar sem boðið verður upp á kaffi og kleinur. Nánari upplýsingar í síma 842-4376.