Stök frétt

Hugmyndin Beljur í búð stóð uppi sem sigurvegari í Plastaþoni Umhverfisstofnunar og Plastlauss septembers sem fram fór nú um síðustu helgi. Sjö teymi unnu að lausnum á plastvandanum en ákaflega fjölbreyttur hópur fólks tók þátt í viðburðinum. Dómnefnd skipuðu Auður Önnu Magnúsdóttir, framkvæmdarstjóri Landverndar, Einar Bárðarson, framkvæmdarstjóri Votlendissjóðs og Sigríður Heimisdóttir, iðnhönnuður hjá IKEA.

 

Hugmyndin er sú að setja upp sjálfsafgreiðsluvélar fyrir mjólkurvörur í verslunum þannig að kaupandinn geti dælt vörunni sjálfur í fjölnota umbúðir. Teymið samanstóð af tveimur listakonum, tveimur nemum úr Tækniskólanum, verkfræðingi frá Eflu og markaðsstjóra Krónunnar. Teymismeðlimir eru þær Dröfn Sveinsdóttir, Gríma Katrín Ólafsdóttir, Hafdís Bjarnadóttir, Móeiður Helgadóttir, Lára Kristín Þorvaldsdóttir og Hjördís Elsa Ásgeirsdóttir. Í rökstuðningi dómnefndar kom fram að stór þáttur í sigri lausnarinnar væri sú staðreynd að hún gæti vel orðið að veruleika í náinni framtíð.

Á myndinni eru Sigríður Heimisdóttir, Auður Önnu Magnúsdóttir og Einar Bárðarson, meðlimir dómnefndar og Móeiður Helgadóttir, Hafdís Bjarnadóttir og Lára Kristín Þorvaldsdóttir, í sigurteymi Plastaþons 2019.