Stök frétt

Umhverfisstofnun boðar til opins kynningarfundar um niðurstöður eftirlits Umhverfisstofnunar hjá Alcoa Fjarðaáli og umhverfisvöktunar í Reyðarfirði fimmtudaginn 31. okt. næstkomandi í Þórðarbúð v. Austurveg, Reyðarfirði klukkan 16:30.

Dagskrá:

  • Halla Einarsdóttir frá Umhverfisstofnun kynnir eftirlit Umhverfisstofnunar.
  • Einar Halldórsson frá Umhverfisstofnun kynnir niðurstöður úr eftirliti með Alcoa Fjarðaáli.
  • Guðrún Óskarsdóttir frá Náttúrustofu Austurlands kynnir niðurstöður umhverfisvöktunar.
  • Guðmundur Sveinsson Kröyer frá Alcoa Fjarðaáli kynnir losun á gróðurhúsalofttegundum frá Alcoa Fjarðaáli.

Umræður að loknum framsögum. Allir velkomnir.