Stök frétt

Vöktun á magni plasts í meltingarvegi fýla árið 2019 er lokið og eru niðurstöður aðgengilegar hér á heimasíðu Umhverfisstofnunar.

Helstu niðurstöður
Um 64% fýlanna voru með plast í meltingarvegi, þar af um 13% með yfir 0,1 g. 
Að meðaltali voru 3,7 plastagnir í hverjum fýl. Meðalþyngd plastsins var 0,12 g/fýl, sem er sambærilegt við niðurstöður ársins 2018. 
Þetta er örlítið minna magn en komið hefur fram í eldri rannsóknum á plasti í fýlum hér við land. 
Magn plasts er yfir þeim mörkum sem OSPAR stefnir að og fela í sér að innan við 10% fýla hafi yfir 0,1 g af plasti í meltingarvegi.
Samanborið við fýla á öðrum hafsvæðum við Norður-Atlantshaf virðist vera minna magn af plasti  í fýlum hér við land, miðað við niðurstöður rannsókna árin 2018 og 2019. 

Mynd: Plast í meltingarfærum eins fýls árið 2019 á millimetrapappír.