Stök frétt

Undanfarið hafa fulltrúar Umhverfisstofnar, forsætisráðuneytisins og fulltrúi sveitarfélagsins Bláskógabyggðar unnið að gerð stjórnunar- og verndaráætlunar fyrir náttúruvættið Jörund. 

Drög að áætluninni eru hér með lögð fram til kynningar. 

Jörundur er hraunhellir staðsettur í Lambahrauni við Hlöðufell. Jörundur var friðlýstur sem náttúruvætti árið 1985 með auglýsingu nr. 333/1985. Dropsteinar í hellinum voru þegar friðlýstir með auglýsingu nr. 120/1974.

Stjórnunar- og verndaráætlun fyrir Jörund er ætlað að vera stefnumótandi skjal, unnið í samvinnu við rétthafa lands og sveitarfélag og er hugsað sem stjórntæki til að móta framtíðarsýn svæðisins. Markmiðið með gerð hennar er að leggja fram stefnu um verndun Jörund og hvernig viðhalda skuli verndargildi svæðisins þannig að sem mest sátt ríki um. Í áætluninni er lögð fram stefnumótum til 10 ára, ásamt aðgerðaáætlun til fimm ára. 

Drög að stjórnunar- og verndaráætlun fyrir Jörund auk auglýsingar um friðlýsingu svæðisins má sjá hér.

Frestur til að skila inn ábendingum og athugasemdum varðandi tillöguna er til og með 19. mars 2020.

Hægt er að skila inn ábendingum og athugasemdum á heimasíðu Umhverfisstofnunar, með tölvupósti á netfangið ust@ust.is, eða með því að senda póst til Umhverfisstofnunar, Suðurlandsbraut 24, 108 Reykjavík.