Stök frétt

Mynd: Julius Agrippa

Umhverfisstofnun, ásamt Reykjavíkurborg og landeiganda, kynnir hér með áform um friðlýsingu Lundeyjar í Kollafirði sem friðland, í samræmi við 49. gr. náttúruverndarlaga nr. 60/2013. Meginmarkmið friðlýsingarinnar er að vernda mikilvæga sjófuglabyggð og sérstætt gróðurlendi.

Áform um friðlýsingu eru kynnt í samræmi við 2. mgr. 38. gr. náttúruverndarlaga en gert er ráð fyrir að svæði sem ekki eru á framkvæmdaáætlun náttúruminjaskrár skuli kynnt sérstaklega.

Frestur til að skila athugasemdum við áform um friðlýsingu er til og með 29. júlí 2020. Athugasemdum má skila á heimasíðu Umhverfisstofnunar, með tölvupósti á netfangið ust@ust.is eða senda með pósti til Umhverfisstofnunar, Suðurlandsbraut 24, 108 Reykjavík. Nánari upplýsingar má finna á hér