Stök frétt

Umhverfisstofnun, ásamt Mosfellsbæ, kynnir hér með áform um endurskoðun á friðlýsingu Varmárósa í samræmi við 49. gr. laga um náttúruvernd nr. 60/2013. Um er að ræða breytingu á mörkum friðlandsins ásamt endurskoðun friðlýsingarskilmála.

Áform um friðlýsingu eru kynnt í samræmi við 2. mgr. 38. gr. náttúruverndarlaga en gert er ráð fyrir að svæði sem ekki eru á framkvæmdaáætlun náttúruminjaskrár skuli kynnt sérstaklega.

Frestur til að skila athugasemdum við áformin er til og með 18. ágúst 2020. Athugasemdum má skila á heimasíðu Umhverfisstofnunar, með tölvupósti á netfangið ust@ust.is eða senda með pósti til Umhverfisstofnunar, Suðurlandsbraut 24, 108 Reykjavík.

Nánari upplýsingar má finna hér