Stök frétt

16. júlí sl. köfuðu kafarar á vegum Landhelgisgæslu Íslands niður að flaki El Grillo sem liggur á botni Seyðisfjarðar, eftir að vart varð við olíumengun frá skipinu. Í ljós kom að aðgerðir sem farið var í til að hefta olíuleka úr einum af tönkum skipsins í vor halda og er enginn leki sjáanlegur frá þeim tanki.  Hinsvegar virðist sem farið sé að leka úr öðrum tanki sem staðsettur er undir brú skipsins. Lekinn kemur frá mannopi sem staðsett er framan við brúna en drasl og set á dekki heftir aðgengi að þessum tanki. Sjávarhiti er hár á þessum árstíma sem getur orsakað aukinn leka núna en þó er ekki um mikinn leka að ræða. Umhverfisstofnun og Landhelgisgæslan eru að meta næstu skref og mögulegar aðgerðir til að stöðva lekann.