Stök frétt

Bláskelin, viðurkenning umhverfis- og auðlindaráðuneytisins fyrir framúrskarandi plastlausa lausn, verður afhent í beinni útsendingu á Facebooksíðu Umhverfisstofnunar þann 8. september kl. 13.

Viðurkenningin er veitt fyrirtæki, stofnun, einstaklingi eða öðrum fyrir framúrskarandi lausnir sem stuðla að minni plastnotkun og plastúrgangi í samfélaginu. Kallað var eftir tilnefningum á vormánuðum og voru 13 aðilar tilnefndir í 16 tilnefningum.

Dómnefnd skipa Sigrún Ágústsdóttir, forstjóri Umhverfisstofnunar, Sigríður Ingvarsdóttir, forstjóri Nýsköpunarmiðstöðvar Íslands, Sigríður Mogensen, sviðsstjóri hjá Samtökum iðnaðarins og Sævar Þór Halldórsson í framkvæmdahópi Plastlauss september. Tekin var ákvörðun um að fjórir aðilar kæmust í úrslitahóp en þeir eru, í stafrófsröð, Bioplastic Skin, Krónan, Matarbúðin Nándin og Plastplan.

Bioplastic Skin er verkefni sem snýr að hönnun umhverfisvænna umbúða úr dýrahúðum sem nota má til að pakka kjötvörum. Nú til dags er stór hluti dýraskrokka vannýttur eftir slátrun og þar með er dýrmætum hráefnum eins og dýrahúðum sóað. Í dag, á meðan verið er að rannsaka nákvæma eiginleika efnisins, er markmið verkefnisins að vekja fólk til umhugsunar um einnota plastumbúðir og kjötneyslu.

Krónan hefur unnið markvisst að því að draga úr magni plasts sem fellur til í verslunum og auka endurvinnslu. Á síðasta ári hóf Krónan samstarf við Plastplan sem endurvinnur plast frá verslun þeirra á Granda og fyrr á árinu skrifuðu þau undir samstarfssamning við Pure North Recycling og tryggja með því endurvinnslu á öllu plasti sem til fellur hjá fyrirtækinu. Krónan tók úr umferð alla smápoka úr plasti sem hafa fengist gefins við kassa og í ávaxta- og grænmetisdeildum. Stefna þeirra er svo að hætta með alla burðarpoka úr plasti – um leið og birgðir klárast, sem er áætlað í október.

Matarbúðin Nándin er plastlaus matarbúð sem endurnýtir glerið sem selt er í búðinni. Markmið þessa fjölskyldufyrirtækis er að skapa „sjálfbært matvælakerfi“ þar sem sett er upp hringrás fyrir gler, ásamt því að selja matvöru í niðurbrjótanlegum og moltuhæfum umbúðum. Starfsmenn leggja sig fram um að vera ráðgefandi gagnvart sínum samstarfsaðilum um hvernig best er að taka þátt í verkefninu.

Plastplan sérhæfir sig í plastendurvinnslu, hönnun og fræðslu. Fyrirtækið býður einstaklingum og fyrirtækjum ráðgjöf varðandi minni plastnotkun og plastsóun ásamt því að endurvinna það plast sem óumflýjanlega fellur til hjá viðkomandi aðilum. Plastplan flokkar, hreinsar, hakkar og umbreytir plastinu og býr að lokum til nytjahluti fyrir viðskiptavini sína.

Hér má finna Facebook viðburð afhendingarinnar.

Dagskráin er eftirfarandi:

• Opnunarávarp – Hildur Harðardóttir og Birgitta Steingrímsdóttir hjá Umhverfisstofnun

• Ávarp dómnefndar – Sigríður Mogensen hjá Samtökum iðnaðarins

• Afhending Bláskeljar – Guðmundur Ingi Guðbrandsson, umhverfis- og auðlindaráðherra

• Myndband um sigurlausnina

• Plastlaus september – Heiður Magný Herbertsdóttir, formaður samtakanna Plastlaus september