Stök frétt

Umhverfisstofnun, í samstarfi við Garðabæ og Styrktar- og líknarsjóð Oddfellowa, kynnir hér með áform um friðlýsingu Urriðakotshrauns í Garðabæ, sem fólkvang í samræmi við 52. gr. laga nr. 60/2013 um náttúruvernd. Unnið er að deiliskipulagi svæðisins.

Einnig kynnir Umhverfisstofnun áform um endurskoðun friðlýsingar Skógafoss og nágrennis, í samræmi við 48. gr. náttúruverndarlaga nr. 60/2013. Um er að ræða breytingar á mörkum náttúruvættisins ásamt endurskoðun á friðlýsingarskilmálum. Markmið friðlýsingarinnar er að vernda sérstakar náttúruminjar, Skógafoss og ásýnd hans, vistgerðir og líffræðilega fjölbreytni, sem og ánna sjálfa og fossaröð hennar. 

Áform um friðlýsingu eru kynnt í samræmi við 2. mgr. 38. gr. náttúruverndarlaga, en gert er ráð fyrir að svæði sem eru ekki á framkvæmdaáætlun náttúruminjaskrár skulu kynnt sérstaklega. 

Frestur til að skila athugasemdum við áformin er til og með 4. desember 2020. Athugasemdum má skila á heimasíðu Umhverfisstofnunar, með tölvupósti á netfangið ust@ust.is eða senda með pósti til Umhverfisstofnunar, Suðurlandsbraut 24, 108 Reykjavík. 

Nánari upplýsingar um Urriðakotshraun má finna hér
Nánari upplýsingar um Skógafoss má finna hér