Stök frétt

Undanfarið hafa fulltrúar Umhverfisstofnunar og Mosfellsbæjar unnið að gerð stjórnunar- og verndaráætlunar fyrir náttúruvættið Tungufoss í Mosfellsbæ sem nú hefur verið staðfest af umhverfis- og auðlindaráðherra.

Tungufoss og nánasta umhverfi hans var friðlýst sem náttúruvætti árið 2013. Fossinn er fallegur foss neðarlega í Köldukvísl í Mosfellsbæ á móti Leirvogstungu og dregur fossinn nafn sitt af bæjarnafninu. Við Tungufoss má sjá leifar af heimarafstöð sem var reist árið 1930 af bóndanum í Leirvogstungu og bræðrum hans og framleiddi stöðin rafmagn fyrir bæinn fram til ársins 1958.

Tveir fallegir hylir eru neðan við Tungufoss: Kerið, sem er beint fyrir neðan fossinn, og Klapparhylur litlu neðar.

Stjórnunar- og verndaráætlun Tungufoss 2020-2029 ásamt aðgerðaráætlun 2020-2022 má nálagst hér.