Stök frétt

Mynd: Þorleifur Geirsson
Umhverfisstofnun, ásamt landeigendum og sveitarfélaginu Borgarbyggð, kynnir áform um friðlýsingu Borgarvogs í Borgarbyggð sem friðlands í samræmi við 49. gr. náttúruverndarlaga nr. 60/2013. 

Áformin eru kynnt í samræmi við málsmeðferðarreglur 2. og 3. mgr. 36. gr. náttúruverndarlaga, sbr. 2. mgr. 38. gr. laganna en gert er ráð fyrir að svæði sem ekki er á framkvæmdaáætlun náttúruminjaskrár skuli kynnt sérstaklega. 

Áformin ásamt korti og hnitaskrá er að finna á upplýsingasíðu.

Frestur til að skila athugasemdum við áformin er til og með 21. febrúar 2021. Athugasemdum má skila á heimasíðu Umhverfisstofnunar, með tölvupósti á netfangið ust@ust.is eða senda með pósti til Umhverfisstofnunar, Suðurlandsbraut 24, 108 Reykjavík.