Stök frétt


Umhverfisstofnun hefur fallist á að framlengja gildistíma starfsleyfis Ísteka ehf. að Grensásvegi 8 í Reykjavík. Starfsleyfið var gefið út af Heilbrigðiseftirliti Reykjavíkur þann 13. janúar 2009 með gildistíma til 13. janúar 2021.

Útgefanda starfsleyfis er heimilt að framlengja starfsleyfi með þessum hætti skv. 4. mgr. 6. gr. laga nr. 7/1998 um hollustuhætti og mengunarvarnir að hámarki til eins árs, á meðan nýtt starfsleyfi er í vinnslu, hafi fullnægjandi umsókn um nýtt starfsleyfi borist útgefanda.

Fullnægjandi umsókn um nýtt starfsleyfi hefur borist og nýr gildistími starfsleyfisins er til 13. janúar 2022.
Ákvörðun Umhverfisstofnunar um framlengingu á gildistíma starfsleyfisins er kæranleg til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála innan eins mánaðar frá birtingu ákvörðunar, skv. 65. gr. laga nr. 7/1998, sbr. 4. gr. laga nr. 130/2011.

Tengd skjöl:
Ákvörðun um framlengingu starfsleyfis
Starfsleyfi Ísteka ehf.