Stök frétt

Mynd: Unsplash

Nú hefur umhverfis- og auðlindaráðuneytið auglýst hreindýraveiðikvóta ársins 2021.

Umhverfisstofnun annast sölu hreindýraveiðileyfa. Umsóknarfrestur er til og með mánudeginum 1. mars en umsóknum skal skilað inn á vef Umhverfisstofnunar www.ust.is/veidimenn

Heimilt er að veiða allt að 1220 hreindýr árið 2021, 701 kýr og 519 tarfa. Þessi fjöldi er með fyrirvara um að ekki verði verulegar breytingar á stofnstærð fram að veiðum. Samkvæmt gjaldskrá nr. 309/2018 er veiðigjaldið kr. 150.000 fyrir tarf og kr. 86.000 fyrir kú. Veiðigjaldið greiðist eigi síðar en 15. apríl.

Veiðitími tarfa er frá 15. júlí til og með 15. september. Á tímabilinu 15. júlí til 1. ágúst er veiði á törfum einungis heimiluð að því tilskildu að þeir séu ekki í fylgd með kúm og að veiðarnar trufli ekki kýr og kálfa í sumarbeit.

Veiðitími kúa er frá 1. ágúst til og með 20. september. Þeim eindregnu tilmælum er beint til veiðimanna að fyrstu tvær vikur veiðitíma skulu veiðimenn og leiðsögumenn í lengstu lög forðast að fella mylkar kýr og veiða af fremsta megni geldar kýr. Þessum tilmælum er ætlað að draga úr áhrifum veiða á kálfa og stuðla að því að kálfar verði ekki móðurlausir fyrir 12 vikna aldur.

Á tímabilinu 1. nóvember til og með 20. nóvember eru veiðar á kúm heimilaðar á svæðum átta og níu. Í umsókn um veiðileyfi er valið um veiði á hefðbundum veiðitíma eða nóvemberveiðitíma.

Veiðiheimildir árið 2021 skiptast sem hér segir eftir veiðisvæðum og kyni dýra:


Frétt umhverfis- og auðlindaráðuneytis