Stök frétt

Hvalfjörður / Jón Helgason

Í samræmi við ákvæði starfsleyfa iðjuveranna á Grundartanga, Norðuráls, Elkem Ísland og Als álvinnslu, boðar Umhverfisstofnun til opins kynningarfundar um niðurstöður mengunareftirlits og umhverfisvöktunar fimmtudaginn 27. maí kl. 14:00.

Fundurinn verður í fjarfundarsniði þetta árið og streymt í gegnum Teams forritið. Hlekkur á fundinn verður kynntur samdægurs á vef og Facebooksíðu stofnunarinnar.

Dagskrá fundar
Fundarstjóri: Skúli Þórðarson

  • Niðurstöður eftirlits 2020 -  Halla Einarsdóttir
  • Niðurstöður Umhverfissvöktunar á Grundartanga 2020 -  Eva Yngvadóttir

Tengill á fundarboðið