Stök frétt

Hornstrandastofa hlaut nýverið útsaumaða mynd til varðveislu. Myndina saumaði Sigríður Jakobsdóttir í Reykjafirði handa foreldrum sínum í kringum 1940.

Dætur Sigríðar (úr Furufirði á Hornströndum) færðu starfsfólki Hornstrandastofu myndina undir lok síðasta árs. Myndin prýðir nú eldhúskrók í gestastofunni.  

Um Hornstrandastofu

Hornstrandastofa er upplýsingamiðstöð fyrir ferðamenn og sýning um Hornstrandir, staðsett á Ísafirði. Hornstrandastofa er opin á virkum dögum frá kl. 13 til 15. 

Meira um friðlandið Hornstrandir

 

Mynd: Útsaumuð mynd frá því í kringum 1940 prýðir nú eldhúskrókinn í Hornstrandastofu.