Stök frétt


Umhverfisstofnun hefur tekið ákvörðun um útgáfu vegna breytingar á starfsleyfi Arnarlax ehf. Þorlákshöfn. Um er að ræða leyfi sem heimilar landeldi með allt að 900 tonna lífmassa á hverjum tíma.

Breytingin fór í fyrirspurn til Skipulagsstofnunar vegna matsskyldu sem komst að niðurstöðu um að hún þyrfti ekki að fara í umhverfismat.

Tillaga að breyttu starfsleyfi var auglýst á tímabilinu 11. febrúar 2022 til og með 14. mars 2022 þar sem hægt var að koma með athugasemdir vegna hennar. Engar athugasemdir bárust vegna tillögunnar á auglýsingatíma. Greinargerð vegna útgáfunnar fylgir aftast í starfsleyfinu sbr. 6. gr. reglugerðar nr. 550/2018.

Tengd skjöl:
Ákvörðun um útgáfu á starfsleyfi Arnarlax ehf. Þorlákshöfn
Starfsleyfi Arnarlax ehf. Þorlákshöfn breytt
Norrænt BAT