07. október 2022 | 11:14
Ráðstefna um hringrásarhagkerfið
Umhverfisstofnun og Samband íslenskra sveitarfélaga efna til ráðstefnu um hringrásarhagkerfið. Ráðstefnan fer fram föstudaginn 7. október kl. 10:00 - 15:30 í Hvammi á Grand Hótel Reykjavík og í beinu streymi.
Yfirskrift ráðstefnunnar er: Samtaka um hringrásarhagkerfi - Réttur farvegur til framtíðar.
Tilefnið er útgáfa handbókar um úrgangsstjórnun sveitarfélaga og átaksverkefnið Samtaka um hringrásarhagkerfi.
Ráðstefnan er hugsuð fyrir:
- Starfsfólk í fjármálum, innkaupum og úrgangsstjórnun sveitarfélaga
- Sveitarstjórnarfólk og sveitarstjóra
- Ráðgjafa
- Þjónustuaðila
- Aðra sem láta sig úrgangsstjórnun sveitarfélaga varða
Markmið ráðstefnunnar er að:
- Gefa yfirlit yfir þau verkfæri og leiðir sem sveitarfélög hafa í úrgangsstjórnun og hvernig þau geta verið betur í stakk búin til að tileinka sér þær breytingar sem verða á úrgangslöggjöfinni þann 1. janúar 2023.
- Skapa lifandi vettvang upplýsinga og umræðu um þær útfærslur sem eru fyrir hendi, hvað stendur í vegi sveitarfélaga í aðlögun að breyttu fyrirkomulagi úrgangsmála, hvað getum við lært af reynslunni og hver sé leiðin fram á við.
Skráning, dagskrá og nánari upplýsingar.
Viðburðurinn á Facebook
