Stök frétt

Mynd: Skarphéðinn G. Þórisson

Drög að úthlutun hreindýraarðs fyrir árið 2022 verða á næstu dögum send til kynningar í sveitarfélögum og munu þau liggja frammi á skrifstofum sveitarfélaganna til skoðunar frá 5. desember til 16. desember 2022, sem er sá frestur sem gefst til að gera athugasemdir.

Landeigendum og/eða ábúendum er bent á að senda inn skriflegar athugasemdir innan þess tíma svo að Umhverfisstofnun geti tekið afstöðu til þeirra og hægt sé að greiða arðinn út sem fyrst að fresti loknum.

Skriflegar athugasemdir sendist til:

Umhverfisstofnun
Tjarnarbraut 39
Pósthólf 174,
700 Egilsstaðir