Stök frétt

Nýjar leiðbeiningar um viðmiðunarmörk fyrir mengaðan jarðveg og frummat fyrir menguð svæði eru komnar út. Fyrsta útgáfa af gagnvirku korti yfir menguð svæði á landinu er nú einnig aðgengileg.

Leiðbeiningar 

Leiðbeiningarnar um viðmiðunarmörk eru ætlaðar til að útskýra notkun viðmiðunarmarka sem sett eru fram í reglugerð nr. 1400/2020 um mengaðan jarðveg. Leiðbeiningarnar um frummat  fyrir menguð svæði eiga að auðvelda heilbrigðiseftirlitum gerð frummats og notkun á gagnagrunninum fyrir mengaðan jarðveg.

Kort yfir mengaðan jarðveg


Gagnvirkt kort  yfir mengaðan jarðveg á landinu er nú aðgengilegt á heimasíðu Umhverfisstofnunar.

Stofnunin og heilbrigðiseftirlitin í landinu vinna að því að setja inn upplýsingar í gagnagátt um þekkt menguð svæði og svæði þar sem grunur er um mengun. Upplýsingarnar birtast svo á gagnvirku korti.
Áætlað er að vinna við innsetningu á upplýsingum í gagnagáttina taki talsverðan tíma.

Ábendingar um menguð svæði 

Almenningur getur nú einnig sent ábendingar um menguð svæði í gegnum gagnagáttina. Ábendingunum er komið áfram til viðeigandi heilbrigðiseftirlits til úrvinnslu og frummats.