Fyrirkomulag útdráttarins er einfalt. Allir sem sækja um fá úthlutað handahófskenndu númeri í útdrættinum sem getur verið á bilinu 1 til 100.000. Þeir sem fá lægstu númerin ganga fyrir í útdrættinum á hverju veiðisvæði fyrir sig. Ef kvótinn hljóðar upp á 100 dýr á svæðinu eru það einfaldlega þeir sem eru með 100 lægstu númerin sem fá veiðileyfi. Röð á biðlista ræðst af sama fyrirkomulagi.
Vakin er sérstök athygli á að greiða þarf veiðileyfið að fullu ekki síðar en mánudaginn 17. apríl til þess að hægt sé að byrja fyrr að úthluta veiðileyfum af biðlista.
Allir sem fá úthlutað hreindýraveiðileyfi þurfa einnig að standast skotpróf fyrir 1. júlí en heimilt er að reyna þrisvar sinnum við skotprófið. Standist menn ekki skotprófið er veiðileyfinu úthlutað til næsta manns á biðlista.
Umsækjendur geta skoðað niðurstöður úr útdrættinum í þjónustugáttinni auk þess að fá niðurstöður sendar í tölvupósti eftir helgi.