Stök frétt

Þann 24. maí næstkomandi bjóða Saman gegn sóun, Sorpa, Úrvinnslusjóður og Tækniskólinn öllum sem starfa við og/eða hafa áhuga á hönnun, sölu, notkun, viðgerðum og endurvinnslu raftækja til fundar í Góða hirðinum.

Til að draga úr þeim neikvæðu umhverfisáhrifum sem raftæki hafa í för með sér er mikilvægt að hagsmunaaðilar ræði saman. Á fundinum hlýðum við á fyrirlestra og ræðum í sameiningu um stöðu raftækja í hringrásarhagkerfinu.

Til umræðu verður einna helst hvað stendur í vegi fyrir því að við getum: 

  • Dregið úr ofneyslu raftækja?
  • Lengt líftíma raftækja?
  • Aukið flokkun og endurvinnslu raftækja? 

Fyrir hverja?

  • Framleiðendur raftækja
  • Verslanir sem selja raftæki
  • Móttökuaðila raftækja
  • Viðgerðaraðila raftækja
  • Endursöluaðila raftækja
  • Verkfæraleigur
  • Fyrirtæki og stofnanir sem kaupa og nota raftæki
  • Öll áhugasöm um raftæki og hringrásarhagkerfi

Sem fyrr segir fer fundurinn fram í Góða hirðinum þann 24. maí næstkomandi frá kl. 8:30-11. Fundinum verður ekki streymt.

Skráning á fundinn.

Tengliðir verkefnisins eru Birgitta Steingrímsdóttir (birgittasteingrims@ust.is) og Þorbjörg Sandra Bakke (thorbjorgb@ust.is) hjá Saman gegn sóun.

Sjáumst í stuði!