Stök frétt

Rekstraraðilar og flugrekendur sem falla undir ETS kerfið á Íslandi hafa gert upp losun ársins 2022. 

Losun frá iðnaði jókst um 1,9%

Losun frá iðnaði jókst um 1,9% á milli 2021 og 2022. Hún var 1.879.076 tonn af CO2 ígildum árið 2022 en 1.843.588 tonn af CO2 ígildum árið 2021.

Sex rekstraraðilar í staðbundnum iðnaði gerðu upp heimildir sínar fyrir losun ársins 2022. Það eru jafn margir og gerðu upp árið 2021.

 

Skoða ítarlegar upplýsingar um uppgjör í iðnaði  

Losun frá flugi jókst um 101%

Losun frá flugi jókst um 101% milli 2021 og 2022. Vöxturinn skýrist af auknum flugsamgöngum eftir heimsfaraldur. Losun frá flugrekendum í ETS kerfinu var 537.296 tonn af CO2 ígildum árið 2022 samanborið við 267.043 tonn af CO2 ígildum árið 2021.

Losunin er farin að nálgast það sem hún var árið 2019 en er þó enn talsvert lægri en hún var þegar hún var sem mest árið 2018.

Hér er þó ekki um alla losun þessara flugrekenda að ræða, heldur eingöngu þá losun sem á sér stað innan EES svæðisins, til Bretlands og til og frá Sviss. Flug utan þess svæðis er ekki innan gildissviðs ETS kerfisins og er losun vegna þess flugs ekki með í þessum tölum. Flug utan ETS kerfisins fellur undir alþjóðlega kerfið CORSIA.

 

Skoða ítarlegar upplýsingar um uppgjör í flugi