Stök frétt

Mynd fengin af heimasíðu rekstraraðila
Umhverfisstofnun auglýsir bráðabirgðaheimild fyrir SORPU bs vegna urðunar í Álfsnesi. 
SORPA bs óskar eftir bráðabirgðaheimild til að hægt sé að halda áfram urðun í Álfsnesi meðan unnið er að breytingu á starfsleyfi. Umhverfisstofnun er heimilt skv. 7. gr. a. laga nr. 7/1998 að veita rekstraraðila bráðabirgðaheimild að uppfylltum skilyrðum.

Athugasemdafrestur við auglýsinguna er til og með 20. desember 2023. Athugasemdir skulu vera skriflegar og berast stofnuninni á netfangið ust@ust.is merktar UST202312-045.