Stök frétt

Mynd: Jóhann Óli Hilmarsson

Umsóknarfrestur um veiðileyfi fyrir hreindýr rann út á miðnætti fimmtudaginn 29. febrúar síðastliðinn.

Dregið verður úr umsóknum um hreindýraveiðileyfi í beinu streymi föstudaginn 15. mars klukkan 17.00. Hlekkur á streymi: www.ust.is/hreindyr-2024

Breytilegt er eftir umsóknum hvaða líkur veiðimenn hafa á að fá úthlutað veiðileyfi. Alls bárust 3.199 umsóknir, þar af 3.195 gildar. Kvótinn í ár er samtals 800 dýr, 403 tarfar og 397 kýr. Í ár eru 57 veiðimenn á fimmskiptalista.

Fyrirkomulag útdráttarins er einfalt. Allir sem sækja um fá úthlutað handahófskenndu númeri í útdrættinum sem getur verið á bilinu 1 til 100.000. Þeir sem fá lægstu númerin ganga fyrir í útdrættinum á hverju veiðisvæði fyrir sig. Ef kvótinn hljóðar upp á 100 dýr á svæðinu eru það einfaldlega þeir sem eru með 100 lægstu númerin sem fá veiðileyfi. Röð á biðlista ræðst af sama fyrirkomulagi.

Vakin er sérstök athygli á að greiða þarf veiðileyfið að fullu ekki síðar en mánudaginn 15. apríl. Tilgangurinn er að hægt sé að byrja fyrr að úthluta veiðileyfum af biðlista. 

Allir sem fá úthlutað hreindýraveiðileyfi þurfa einnig að standast skotpróf fyrir 1. júlí en heimilt er að reyna þrisvar sinnum við skotprófið. Standist menn ekki skotprófið er veiðileyfinu úthlutað til næsta manns á biðlista