Frétt

Síðasti mögulegi greiðsludagur staðfestingargjalds fyrir hreindýraveiðileyfi er fimmtudagurinn 31. mars. Ekki er hægt að greiða 1. apríl. Ef greiðsla berst ekki fyrir tilskilinn tíma hefur veiðimaður afsalað sér úthlutuðu leyfi og því verður úthlutað til næsta manns í biðröð.

Alltaf er eitthvað um að menn fái ekki útsenda greiðsluseðla. Hægt er að greiða staðfestingargjald beint inn á reikning eftir neðangreindum upplýsingum ef menn finna ekki greiðsluseðil eða kröfuna í heimabanka.

  • Reikningsnúmer: 305-13-300515
  • Kennitala móttakanda: 7010022880
  • Skýring greiðslu: Kennitala leyfishafa


Upphæð staðfestingargjalds eftir svæðum  og kyni eru sem hér segir:

  • Tarfur á svæði 2: kr 33.750
  • kýr á svæði 2: kr. 20.000
  • Tarfur á svæðum 3-9: kr. 25.000
  • kýr á svæðum 3-9: kr. 13.750