Stök frétt

Höfundur myndar: Kristinn Már Ársælsson

Umhverfisstofnun hefur unnið tillögu að starfsleyfi fyrir urðunarstað SORPU bs. í Álfsnesi, Reykjavík.  Samkvæmt tillögunni verður heimilt að taka á móti og urða allt að 120 þúsund tonn af úrgangi á ári, starfrækja hreinsistöð fyrir hauggas, gera tilraunir með endurnýtingu flokkaðs úrgangs og geyma úrgang sem nýttur er við rekstur urðunarstaðarins eða bíður endurnýtingar. Samkvæmt starfsleyfistillögunni verður gildistími starfsleyfis til næstu 16 ára.  Tillagan, ásamt starfsleyfisumsókn og fylgigögnum, mun liggja frammi til kynningar í þjónustuveri Reykjavíkurborgar, Borgartúni 12-14, 105 Reykjavík, til 3. júní 2014.  Starfsleyfistillögu og önnur gögn má einnig nálgast á heimasíðu Umhverfisstofnunar.  Öllum er frjálst að gera athugasemdir við starfsleyfistillöguna en þær skulu vera skriflegar, undirritaðar með nafni og heimilisfangi og sendar Umhverfisstofnun.

Kynningarfundurinn var haldinn þriðjudaginn þann 27. maí kl. 17 í Listasal Mosfellsbæjar.

Uppfært 6. júní

Umhverfisstofnun hefur með samþykki SORPU tekið ákvörðun um að framlengja áður auglýstan athugasemdafrest vegna tillögu að starfsleyfi fyrir SORPU. Nýr frestur til að skila inn athugasemdum um tillöguna er til 5. ágúst næstkomandi.

Tengd gögn