Stök frétt

Umhverfisstofnun hefur tekið saman tvær skýrslur, annars vegar um gæði eldsneytis og hins vegar um brennisteinsinnihald í skipaolíu á íslenskum markaði árið 2013. Skýrslurnar voru sendar til Eftirlitsstofnunar EFTA en það er lögbundin skylda stofnunarinnar sbr. reglugerð nr. 560/2007 um fljótandi eldsneyti. Skýrslurnar eru unnar út frá gögnum frá olíufélögum landsins, þ.e. Atlantsolíu, N1, Olís og Skeljungi.  

Í skýrslunum er íslenskum olíumarkaði lýst stuttlega og gerð grein fyrir niðurstöðum ýmissa mælinga sem gerðar eru á bensíni og dísilolíu. Samkvæmt niðurstöðum skýrslanna uppfyllir eldsneyti á íslenskum markaði þær kröfur sem gerðar eru skv. gildandi reglugerð.