Stök frétt

Sameiginleg löggjöf landa á Evrópska efnahagssvæðinu (EES) hefur það markmið að tryggja að snyrtivörur sem boðnar eru fram á markaði séu öruggar fyrir heilbrigði manna við eðlileg notkunarskilyrði. Áður en snyrtivara er markaðssett á EES skal tilnefna ábyrgðaraðila innan þess, sem meðal annars hefur þá skyldu að:

  • skrá vöruna ásamt upplýsingum um hana í snyrtivöruvefgátt ESB (CPNP).
  • láta setja saman og hafa í fórum sínum vöruupplýsingaskjal sem m.a. inniheldur öryggismat fyrir vöruna.
  • tryggja að merkingar á vörunni uppfylli reglur, þar á meðal að upplýsingar um ábyrgðaraðila komi fram á umbúðum.

Mikilvægt er að þeir sem setja á markað snyrtivörur hérlendis tryggi að vörurnar uppfylli ofangreindar kröfur, en einkum þarf að hafa þetta í huga þegar fluttar eru inn snyrtivörur sem upprunnar eru frá löndum utan EES, þar sem aðrar reglur gilda um markaðssetningu þeirra.

Umhverfisstofnun stóð nýlega fyrir eftirliti með húðsnyrtivörum sem upprunnar eru frá löndum utan EES. Farið var til 9 birgja sem eru umsvifamiklir í þeim innflutningi og voru alls 32 vörur skoðaðar.  12 vörur eða 38% reyndust ekki uppfylla alfarið skilyrði EES löggjafar. Af þeim voru 10 ekki skráðar í vefgáttina og þar af vantaði að tilgreina ábyrgðaraðila á umbúðum fyrir 6 vörur. Tvær vörur skorti upplýsingar um ábyrgðaraðila á umbúðum en þær vörur voru skráðar í gáttina. Jafnframt var athugað hvort vörurnar innihéldu óleyfileg innihaldsefni  en svo reyndist ekki vera. Gerðar voru athugasemdir við vörur frá 5 birgjum og þeim veittur frestur til að gera fullnægjandi úrbætur. Nánar má lesa eftirlitið á heimasíðu Umhverfisstofnunar.

Eftirlit þetta staðfestir að ekki er vanþörf á því að birgjar hugi að því að snyrtivörur sem þeir markaðssetja og upprunnar eru í löndum utan Evrópu standist örugglega kröfur sem settar eru innan EES.