Stök frétt

Blesgæsarstofninn sem hefur viðdvöl á Íslandi á fartíma er fáliðaður og verpur mjög dreift á Vesturströnd Grænlands, en þessi tiltekni stofn blesgæsar er kenndur við Grænland. Á fáum árum hefur orðið hrun í stofninum og er orsök þess slakur varpárangur sem veldur því að nýliðun er ekki nægileg til að standa undir afföllum vegna skotveiða á Íslandi. Stofninn taldi um 36.000 fugla á árunum 1998-99 en er nú um 20.000 fuglar. Veiðarnar eru þar af leiðandi ósjálfbærar. Nákvæm orsök afkomubrestsins er óþekkt.

Blesgæs er dekkst gráu gæsanna, er með svartar rákir og díla á kvið og er hann stundum nánast alsvartur. Fætur eru rauðgulir og goggur gulbleikur. Hvít blesa er ofan goggrótar.

Blesgæs er sjónarmun minni en grágæs og heiðagæs en hegðar sér svipað, er sneggri í uppflugi, og sýnist liprari á flugi. Hún lendir með sveiflum og dýfum og kvakar hátt. Röddin er hærra stemmd en hjá öðrum gæsum og hún lætur meira í sér heyra.

Ungfugl að hausti vantar blesuna og svarta bletti á kvið. Hann er lítill, dökkur yfirlitum og goggur er daufari. Hljóðin eru einkennandi, líkt og hjá fullorðnum fuglum. Hann getur verið torgreindur frá öðrum gæsum en heldur sig innan um fullorðnar blesgæsir á haustin, sem ætti að auðvelda greiningu. Sjái skotveiðimenn eina eða fleiri blesgæsir í hópi annarra sem þeir telja hugsanlega vera grágæsir ættu þeir að leyfa þeim að njóta vafans. Líklega er þar um ungfugl að ræða.

Blesgæs hefur viðkomu á Íslandi á vorin frá apríl og fram í miðjan maí, en á haustin frá fyrri hluta september og fram í byrjun nóvember. Útbreiðslusvæði blesgæsar á Íslandi er á Vesturlandi um Borgarfjarðahérað og um sunnanvert Snæfellsnes, til suðurs um Kjós og Hvalfjörð. Á Suðurlandi halda blesgæsir til á láglendi Árnes- og Rangárvallasýslu, undir Eyjafjöllum og í Mýrdal. Í Skaftafellssýslum í Meðallandi, Landbroti og á Síðu.

Á öllum þessum svæðum þarf að gæta sérstakrar varkárni við gæsaveiðar en í öðrum landshlutum er blesgæsin aðeins sjaldséður gestur. Sérstaklega ber að taka vara á veiðum í gæsanáttstöðum þar sem vitað er að blesgæsir safnast saman, en þar geta blesgæsir verið innan um grágæsir.