Stök frétt

Mynd: Patrick Reijnders

Mikil fækkun hefur orðið á mink í Eyjafirði í sérstöku veiðiátaki á vegum umhverfisráðuneytisins, sem nær til tveggja svæða. Einnig hefur mink fækkað á hinu svæðinu, Snæfellsnesi, en ekki jafn hratt.

Árin 2007, 2008 og 2009 hefur staðið yfir tilraunaverkefni um útrýmingu minks á tveim svæðum á landinu. Sérstök umsjónarnefnd er yfir verkefninu, skipuð af umhverfisráðherra, en veiðiátakið er skipulagt og framkvæmt af Umhverfisstofnun. Svæðin sem urðu fyrir valinu voru Snæfellsnes og Eyjafjörður. Samhliða þessu var samið við Náttúrufræðistofnun Íslands um rannsóknir í tengslum við átakið, sem fól Náttúrustofu Vesturlands framkvæmd þeirra. Rannsóknirnar fólust í mati á stofnstærð minks á Snæfellsnesi fyrir átakið og krufningum og rannsóknum á minkum sem veiðast í átakinu.

Markmið átaksins er að auka verulega veiðiálag á minkastofninn á svæðunum tveim frá því sem áður var og meta hvort fýsilegt gæti talist að útrýma mink á landinu. Til að meta hvert álagið hafði verið árin á undan voru gögn Umhverfisstofnunar um endurgreiðslur til sveitarfélaga á svæðunum vegna minkaveiða skoðuð. Í samráði við fagráð átaksins var ákveðið að sama álag yrði öll árin sem verkefnið varaði. Veiðar hefjast í mars og standa fram í nóvember ár hvert.

Til veiðanna voru ráðnir nokkrir lykilveiðimenn á hvoru svæði sem skyldu ákveða lagningu gildra, skipulag veiðanna innan ramma verkefnisins í samráði við verkefnisstjóra og Umhverfisstofnun. Lykilveiðimenn bera ábyrgð á skráningu og umsýslu gagna sem þeir afla með veiðunum og skila veiddum minkum til Náttúrustofu Vesturlands til krufninga.

Við upphaf verkefnisins, árið 2007, var veðurfar mjög hagstætt til veiða. Gildruveiðar hófust af miklum þunga strax í upphafi og hundaveiði hófst í mars á Snæfellsnesi og mánuði síðar í Eyjafirði. Samtals voru veiddir 353 minkar. Í Eyjafirði veiddust 202 og þar af voru 51% kvendýr. Á Snæfellsnesi veiddust 153 og þar af voru 58% kvendýr. Meirihluti dýranna, um 71%, veiddust í gildrur en 24% voru veidd með aðstoð hunda en í eldri athugunum sem gerðar voru á vegum Veiðistjóraembættisins, nú deild lífríkis og veiðistjórnunar Umhverfisstofnunar, var hlutfallið milli veiðiaðferðanna öfugt.

Í upphafi árs 2008 var voru snjóalög gildruveiðum óhagstæð sérstaklega í Eyjafirði. Gildrur voru úti en undir snjó og voru margar frosnar fastar og sumar gildrurnar voru ekki komnar undan snjó fyrr en í byrjun maí. Veiðiálagið var þó svipað og árið á undan þegar á heildina er litið. Samtals veiddust 192 minkar. Í Eyjafirði veiddust 56 minkar og þar af voru 58% kvendýr. 136 minkar veiddust á Snæfellsnesi og af þeim 52% kvendýr. Hlutfall dýra sem veiddist í gildrur þetta árið var um 64%.

Ef veiðin er skilgreind sem fjöldi veiddra minka á 1000 gildrunætur fyrir gildruveiði og fjöldi veiddra minka á 100 km fyrir hundaveiði kemur í ljós að veiðni gildra á Eyjafjarðarsvæðinu var 23% á árinu 2008 af því sem hún var 2007 og 36% fyrir hundaveiðina. Á Snæfellsnesi eru sömu tölur 86% fyrir gildruveiði og 76% fyrir hundaveiði. Hverju þessi munur milli svæða sætir er ekki hægt að slá föstu enn. Veiðitölur á svæðunum benda til meiri þéttleika minka á Snæfellsnesi. Einnig eru veiðimenn sammála að landfræðilegar aðstæður eru erfiðari á Snæfellsnesi.

Nú er hafið þriðja ár verkefnisins. Snjóalög voru, ef eitthvað var, enn óhagstæðari veiðum síðastliðinn vetur á Norðurlandi en fyrri hluta árs í fyrra. Gildrur komu því enn seinna undan snjó en hin árin. Það sem af er árinu 2009 hafa 30 minkar veiðst á Snæfellsnesi þar af 15 í gildrur og 15 með hjálp hunda. Í Eyjafirði hafa veiðst 9 minkar, allir í gildrur. Þróunin virðist vera sú sama í Eyjafirðinum núna þetta árið eins og í fyrra þ.e. að mjög fáir minkar veiðast og þeir veiðast frekar á jaðri svæðisins. Það sama virðist einnig vera uppi á teningnum á Snæfellsnesi það sem af er, þ.e. færri minkar veiðast og einnig eru menn sammála að miklu minna hafi orðið vart við mink á Snæfellsnesi í vetur. Átakið er því vonandi að skila árangri á Snæfellsnesi eins og í Eyjafirði en árinu seinna þar.

Áfangaskýrslu 2007-2008 um verkefnið má nálgast hér.