Stök frétt

Fyrir fjóra

Hráefni

1 stk hreindýrahjarta
Smjör
1/2 l rjómi
Villijurtir frá Pottagöldrum
Timian
Einiber
Salt og pipar

Meðlæti
Rauðkál
Rauðrófur
Kartöflur
Snöggsoðið og lausfryst Rósakál og gulrætur
Sólberjasulta

Aðferð
Hjartað er fitusnyrt og skorið í litla teninga sem eru snöggstektir í smjöri eða olíu, sett í pott ásamt kryddi og rjóma. Soðið í 7-10 mínútur. Borið fram með brúnuðum kartöflum, rauðkáli, rauðrófum og gljáðu grænmeti