Stök frétt

Fjaðrárgljúfur í Skaftárhreppi er svæði á náttúruminjaskrá og hefur landvörður á vegum Umhverfisstofnunar sinnt þar landvörslu frá því í lok maí 2017 fram til áramóta. Ásamt Fjaðrárgljúfri var landvörður með eftirlit með fimm öðrum náttúruverndarsvæðum í sveitarfélögunum Skaftárhrepp og Hornafirði.

Fjaðrárgljúfur er í dag vinsælasti viðkomustaður ferðamanna í Skaftárhreppi. Sveitarfélagið óskaði eftir því á síðastliðnu ári að landvarsla yrði aukin á svæðinu vegna ágangs ferðamanna þar sem svæðið lætur mikið á sjá en einnig til að auka öryggi gesta, sérstaklega yfir vetrartímann. Dr Rögnvaldur Ólafsson setti upp teljara við Fjaðrárgljúfur árið 2015. Allt árið 2017 komu samkvæmt teljaranum 282.423 gestir í Fjaðrárgljúfur, það er 82%  fjölgun frá árinu 2016 þegar 154.948 gestir komu í gljúfrið samkvæmt upplýsingum frá dr. Rögnvaldi Ólafssyni. 5.465 gestir komu í desember sl. í gljúfrið. Í sama mánuði árið 2016 komu 3.942 gestir, sem nemur 39% aukningu á milli ára.

Vegagerðin hefur nú aukið þjónustustig á veginum að Fjaðrárgljúfri svo gera má ráð fyrir enn meiri umferð um svæðið í vetur af þeim sökum. Landvörður hefur undanfarið verið í daglegu eftirliti. Helstu verkefni hafa verið að leiðbeina fólki um svæðið, veita upplýsingar og vara fólk við hættum, eins og hálku á göngustígum sem voru oftar en ekki ófærir nema fyrir þá sem voru á mannbroddum. Landvörður hefur einnig reglulega verið í sambandi við Vegagerðina vegna hálku og ófærðar á veginum að Fjaðrárgljúfri þegar ferðamenn hafa lent í vandræðum. Þá var landvörður daglega í sambandi við starfsmenn Vatnajökulsþjóðgarðs sem reka gestastofu á Kirkjubæjarklaustri þar sem ferðamenn fá m.a. upplýsingar um nærliggjandi náttúruverndarsvæði.

Þörfin á landvörslu í Fjaðrárgljúfri sem og öðrum náttúruverndarsvæðum um allt landið er mjög mikil á þessum árstíma. Landvarsla að vetri er meira krefjandi en yfir sumartímann sökum veðráttu. Þörfin fyrir upplýsingar, fræðslu og leiðsögn á náttúruverndarsvæðum er ekki síður mikilvæg að vetri en sumri og þá sérstaklega er varðar öryggi ferðamanna. Þá er samstarf stofnana, sveitafélaga og viðbragðsaðila á fjölförnum ferðamannastöðum um land allt mjög mikilvægt þegar allra veðra er von.