Stök frétt

Í október s.l. fékk Alþingi viðurkenningu verkefnisins Græn skref í ríkisrekstri fyrir innleiðingu á fyrsta Græna skrefinu. Með aukinni umhverfisvitund og innleiðingu aðgerða í umhverfismálum hafa ýmsar breytingar orðið sem gera Alþingi að umhverfisvænni vinnustað. Grænu skrefin eru í hópi ábyrgðarverkefna Umhverfisstofnunar. Skulu nú nefndar til sögunnar nokkrar jákvæðar breytingar á Alþingi, þeim vinnustað sem kannski hvað oftast er milli tannanna á fólki:

Innkaup á sódavatni í einnota plastflöskum hafa dregist saman um 87%. Þingmenn og aðrir starfsmenn nota nú sódavatnsvél og fylla á margnota flöskur sem Alþingi gaf þeim. Þessi aðgerð fækkar einnota plastflöskum um u.þ.b. 2.500 árlega.

Í hverjum mánuði bárust um 40 kg af fjölpósti til Alþingis sem jafngildir um hálfu tonni af pappír árlega. Hluti póstsins var innpakkaður í plast. Forsætisnefnd ákvað að draga úr móttöku á fjölpósti til þingmanna og innleiddi stefnu þess efnis í desember s.l. Nú er einungis tekið á móti átta eintökum af skýrslum (einni fyrir hvern þingflokk) og fjórum eintökum af blöðum. Óskað var eftir því að blöð og skýrslur væru ekki pakkaðar í plast og að þingmenn fengju í staðinn sendan hlekk á skýrslur. (Þess má geta að stefnan nær ekki til dagblaða og landshlutablaða/bæjarblaða en áskriftir að þeim eru óbreyttar enn sem komið er). Til að auðvelda aðgang að blöðum var sett upp lesstofa þar sem hægt er að skoða skýrslur og blöð sem berast.

Áhersla var sett á umhverfisvænni samgöngur. Starfsmenn og þingmenn hafa tekið vel í að hjóla og ganga til vinnu. Fleiri koma á hjólum til vinnu og settar voru upp rafmagnshleðslustöðvar fyrir bíla.

Flokkun úrgangs hefur aukist mikið. Árið 2017 var endurvinnsluhlutfall Alþingis 72%.