Stök frétt

Mynd: Magnús Freyr Sigurkarlsson

Plast og hlutir tengdir sjávarútvegi eru algengasta ruslið sem finnst við kerfisbundna vöktun stranda á Íslandi. Ný vöktunarströnd á Austurlandi hefur bæst við og eru þær nú orðnar sjö talsins.

Til að fylgjast með þróun á magni og samsetningu þess rusls sem berst á strendur Íslands hefur Umhverfisstofnun valið ákveðin strandsvæði til reglulegrar vöktunar. Þar er allt rusl tínt og flokkað samkvæmt staðlaðri aðferðafræði.  

Strandvöktun hafin á Austurlandi

Ströndin Ýsuhvammur í nágrenni Reyðarfjarðar hefur nú bæst í hóp vaktaðra stranda og er sú eina á Austurlandi. Samið hefur verið við Náttúrustofu Austurlands um að vakta ströndina þrisvar sinnum á ári. Starfsmaður Umhverfisstofnunar aðstoðaði starfsmenn Náttúrustofunnar við fyrstu vöktunina.   

Ströndin Ýsuhvammur í nágrenni Reyðarfjarðar hefur bæst við kerfisbundna vöktun Umhverfisstofnunar á ströndum Íslands. 

Strandir í vöktun Umhverfisstofnunar eru: 

  • Surtsey
  • Bakkavík á Seltjarnarnesi
  • Búðavík á Snæfellsnesi
  • Rauðasandur
  • Rekavík bak Höfn á Hornströndum
  • Víkur á Skagaströnd
  • Ýsuhvammur, Reyðarfirði 

Umhverfisstofnun vaktar sjö strandir umhverfis landið.

 

Við vaktanir á ströndum í ár hefur plastrusl verið algengast og hlutir sem tengjast sjávarútvegi. Í apríl fannst óvenjumikið af klæðnaði í Bakkvík á Seltjarnarnesi.

 

Myndir frá vöktun stranda á árinu 2021. Plast og rusl tengt sjávarútvegi fannst víða. 

 

Um vöktun stranda

Umhverfisstofnun hóf að vakta rusl á ströndum sumarið 2016, samkvæmt aðferðafræði og leiðbeiningum frá OSPAR (samningur um verndun hafrýmis Norðaustur-Atlantshafsins). 

Á hverri strönd fyrir fram afmarkað svæði vaktað. Tilgangur vöktunarinnar er að finna uppruna rusls á ströndum, hvaða flokkar rusls safnast mest fyrir, meta magn sem safnast fyrir yfir ákveðið tímabil og að fjarlægja ruslið. Með vöktuninni uppfyllir Ísland hluta af aðgerðaráætlun OSPAR, um að draga úr skaðsemi úrgangs í hafi og á ströndum.

Umhverfisstofnun sér í flestum tilfellum um framkvæmd vöktunarinnar með aðstoð viðkomandi sveitarfélags og/eða landeigenda.

Nánar um vöktun stranda

Starfsfólk Umhverfisstofnunar og Náttúrufræðistofu Austurlands að störfum við ströndina Ýsuhvamm.