Á hverju ári safnar stofnunin gögnum yfir magn, tegundir, uppruna og ráðstöfun þess úrgangs sem fellur til í landinu, frá fyrirtækjum, sveitarfélögum og öðrum aðilum sem meðhöndla úrgang.
Síðan árði 2017 hefur gagnagátt Umhverfisstofnunar tekið við þessum úrgangsgögnum í formi csv-skráa og eyðublaða.
Nú hefur gagnagáttin verið uppfærð og gefnar út ítarlegar leiðbeiningar um notkun hennar sem og kaflaskipt kynningarmyndband.