Stök frétt

Myndin er fengin úr gögnum frá Olíudreifingu ehf
Umhverfisstofnun áformar að framlengja starfsleyfi Olíudreifingar hf. í Örfirisey í Reykjavík, sem gildir fyrir rekstur olíubirgðastöðvar. Umhverfisstofnun er heimilt að framlengja starfsleyfi rekstraraðila í samræmi við 4. mgr. 6. gr. laga nr. 7/1998 um hollustuhætti og mengunarvarnir. Framlenging á starfsleyfi er heimil til eins árs eða til 31. janúar 2025.
 
Athugasemdir við að leyfið sé framlengt skulu vera skriflegar og sendar Umhverfisstofnun (ust@ust.is) merkt UST202303-105. Frestur til að skila inn athugasemdum er til og með 19. janúar 2024.
 
Hér er hægt að skoða starfsleyfið sem áformað er að framlengja.